Uniconta opnar í Singapore

Uniconta var hleypt af stokkunum í Singapore fyrr í dag með stórum viðburði á Carlton hótelinu. Fjöldi væntanlegra þjónustuaðila, endurskoðenda og ráðgjafa sóttu viðburðinn og Erik Damgaard var aðalræðumaður dagsins.

Singapore er fyrsti markaður Uniconta í Asíu og Malasía er næst á listanum. Lum Choong Eu, sölustjóri Uniconta í Singapore var í skýjunum eftir daginn:

“Við höfum nú þegar samið við fyrsta þjónustuaðilann og fleiri og fleiri viðskiptavinir eru að opna augun fyrir Uniconta. Kynning Uniconta hér í Singapore er fyrsta skrefið í útbreiðslu kerfisins í Asíu þar sem möguleikarnir eru óþrjótandi. Að Erik Damgaard skyldi heiðra okkur með nærveru sinni er sterkt merki um mikilvægi asíska markaðarins”.

Claus Klein-Ipsen, yfirmaður alþjóðlegrar dreifingar Uniconta var einnig viðstaddur:

“Singapore er mikilvægur hlekkur í vaxtaráætlun okkar. Ég hef miklar væntingar um öran vöxt Uniconta í Singapore og víðar í Asíu”.