Með hlutafjáraukningu fær New Online System, félagið sem stendur á bak við Uniconta, tækifæri til að ná leiðandi stöðu á markaði með viðskiptalausnir í skýinu.

Að sögn Erik Damgaard Nielsen forstjóra Uniconta mun hlutafjáraukningin flýta fyrir útbreiðslu hugbúnaðarins í Danmörku og á völdum mörkuðum innan Evrópu, þ.m.t. Íslandi. Uniconta er eina viðskiptalausnin í skýinu fyrir meðalstór fyrirtæki sem býður upp á ótal möguleika til aðlögunar að þörfum fyrirtækjanna. Hann segir einnig að lausnin hafi möguleika á að ná útbreiðslu á heimsvísu í samkeppni við SAP og Dynamics AX en mikil eftirspurn er eftir skýjalausnum sem hægt er að aðlaga að þörfum meðalstórra fyrirtækja.

Jens Munck Holst, forstjóri MP Pension sér fram á að hlutafjáraukningin muni hjálpa Uniconta að ná ríkjandi stöðu á lykilmörkuðum. Stefna sjóðsins sé að fjárfesta í arðbærum verkefnum sem dragi úr notkun raforku og losun kolefna. Með Uniconta geti fyrirtæki loksins hætt að reka eigin gagnaþjóna og flutt reksturinn í gagnaver þar sem orkunýting er mun betri.

Omni Advice unnu að hlutafjáraukninguna og tóku þátt í hlutafjáraukningunni og segir Jakob Bro Jensen forstjóri Omni Advice að verkefnið hafi gengið vonum framar og hann sé fullur tilhlökkunar varðandi áframhaldandi samstarf.

Frekari upplýsingar má finna í meðfylgjandi fréttatilkynningu.

Press Release DKK 60 million equity funding