Útgáfudagur: 14. janúar , 2018
Framleiðslukerfi
Við höfum nú þróað framleiðslukerfi sem viðbót við uppskriftir (BOM). Kveikt er á kerfinu undir Stillingar á virkni/Kerfiseiningar í fyrirtækisvalmynd. Kerfinu svipar til sölupantana þar sem línur í framleiðslu innihalda sömu upplýsingar. Hægt er að “bóka tilbúið” í framleiðslukerfinu sem bókar innihald framleiðslu út og framleiðsluvöruna inn á lager.
Númeraröð afhendingarseðla
Afhendingarseðlar hafa nú númeraröð eins og reikningar.
Tafla fyrir afhendingarseðla
Við höfum sett upp töflu fyrir afhendingarseðla sem auðveldar endurprentun og upplýsingar um uppskriftir. Kveikt er á þessu undir Stillingar á virkni/Kerfiseiningar með því að haka við Afhendingarseðil.
Bókaðar dagbækur í birgðum
Líkt og í fjárhagskerfinu er nú hægt að sjá “Bókaðar dagbækur” í Birgðum. Þar má skoða bókaðar birgðabækur og eyða þeim út.
Birgðabækur með sjálfgefinn lykil og mótlykil
Í uppsetningu birgðabóka er nú hægt að skilgreina sjálfgefin lykil og mótlykil. Þá fara allar færslur í birgðabók á þessa lykla. Með þessu má setja upp margar birgðabækur til mismunandi nota.
Ný birgðafærsla í birgðabók: Opnun
Hægt er að setja inn birgðafærsluna opnun í birgðabók og bóka þannig magn og kostnaðarverð inn á birgðir en ekki í fjárhag. Hér gerum við ráð fyrir því að birgðastaða í fjárhag sé rétt en eigi eftir að færa inn í birgðakerfi.
Birgðatafla sýnir birgðastöðu
Notandinn getur séð allar birgðir til ráðstöfunar, hvað hefur verið pantað og frátekið í birgðatöflunni.
Afsláttarflokkar í birgðum
Hægt er að setja upp verð og afslátti eftir vörunúmerum og vöruflokkum í verðlistum. Vöruflokkar hafa ekki reynst nægilega vel til að halda utan um verð og því höfum við bætt inn afsláttarflokk sem nota má í verðlistum.
Neikvæðar birðgir
Í Valkostum í fyrirtækisvalmynd getur þú nú ákveðið hvort mínusbirgðir eru heimilar.
Notendareitir í tilboðum
Notendareitir úr sölupöntunum er nú aðgengilegir í tilboðum líka.
Sprengja út uppskrift í sölupöntun
Nú er hægt að sprengja út uppskrift í sölupöntun. Uppskriftarvaran sjálf fer í núll við þessa aðgerð til að ekki verði tvíbókun.
Stafræn fylgiskjöl: Skipta PDF skrá í mörg PDF
Þegar farið er í “Bæta við” í stafrænum fylgiskjölum má nú haga við “Skipta upp í mörg PDF“ t.d. ef mörg skjöl hafa verið skönnuð inn í eina PDF skrá.
Prentun fjársskýrlu með ytra heiti
Hægt er að prenta út fjárhagsskýrslur með ytra heiti (t.d. heitum lykla á öðru tungumáli) í fjárhagsskýrslum.
Flýtireikningur. Sama reiknings- og afhendingarheimilisfang
Í flýtireikning er nú hægt að velja að afhendingarstaður og reikningsstaður séu eins.
Uppfletting í fyrirtækjaskrám
Í Uniconta er hægt að slá inn kennitölu fyrirtækis og fá þannig inn nafn og heimilisfang. Nú er þessi möguleiki til staðar fyrir öll lönd í Evrópu. Fyrst er landið valið og svo er skráningarnúmer fyrirtækis í viðkomandi landi slegið inn í reitinn kennitala.
Skriptur í formum
Með endurbótun á “user plugin” getur notandinn keyrt skriptur á meðan margar skjámyndur eru virkar.
C# skriptuna má skrifa beint inn í Uniconta sem keyrir kóðann á skjánum. Forritun í tólinu sem Uniconta notar getur verið snúin þannig að notandinn getur skrifað kóðann í Visual Studio sem “plugin”.
Dæmi: Í “InventoryItemsPage2” töflunni getur þú skrifað eftirfarandi til að fá viðvörun er söluverð 3 er ekki fyllt út:
public override string CheckMandatoryFields(UnicontaBaseEntity record)
{
var item = (InvItem)record;
if (item._SalesPrice3 == 0d)
return “SalesPrice3”;
return null;
}
Nýjir flýtilyklar
Almennt
- Ctrl + S: Vista skjámynd
- Ctrl + W: Loka skjámynd
- Ctrl + P: Prenta
- Ctrl + L: Útskrá
- F9: Tvísmellir til að opna línur
- Alt + F2: Page 2 í “edit mode”
Í dagbókum
- Shift + F8: Sýna hreyfingar lykils
- Ctrl + F8: Sýna hreyfingar mótlykils
Annað
- Tiltekarlisti í sölupöntunum
- Afritun pöntunar tekur einnig afbrigði