Útgáfudagur 15. september, 2019

Rafræn skil VSK

Notendur geta nú sent VSK skýrslur rafrænt í gegnum vefþjónustu RSK. Aðeins þarf að slá inn veflykil RSK í VSK skýrsluna í Uniconta og þá sendist hún rafrænt. Skilagrein VSK vistast í Stafrænum fylgiskjölum þannig að hægt sé að færa VSK greiðslu á uppgjörsreikning VSK og RSK sem lánardrottinn.

Sjálfvirkur innlestur á færslum í bankaafstemmingu

Í bankaafstemmingu geta notendur nú kallað eftir færslum reikninga hjá Landsbanki rafrænt. Stofna þarf sérstakan vefþjónustunotanda (B2B) hjá Landsbanka. Til að kalla eftir færslum er farið „Flytja inn hreyfingayfirlit banka“ í kerfiseiningunni Afstemming banka. Stofna þarf skráarsnið af gerðinni Landsbanki og skrá þarf notandanafn, lykilorð og bankareikning sem 12 stafa streng.  

Uppfærsla á rafrænum reikningum

Uniconta útbýr nú rafræna reikninga skv. tækniforskriftum TS-136 og TS-137 sem hægt er að senda í gegnum skeytamiðlara. Til að senda rafræna reikninga þarf að vera búið að stofna aðgang að skeytamiðlun. Hafið samband við Uniconta eða þjónustuaðila til að stofna.

Lotun áskriftartekna

Í sölupantanakerfi Uniconta geta notendur sett upp áskriftarpantanir til reikningsfærslu með reglulega millibili t.d. til að reikningsfæra áskriftir. Nú geta notendur sett upp lotanir (undir Úthlutanir/Uppsafnanir í Fjárhag) og látið tekjurnar færast á mismunandi tímabil.

Afhendingaseðlartafla í innkaupum

Í sölupöntunum er sérstök tafla fyrir afhendingaseðla og er hún nú einnig aðgengilega í innkaupum. Virkja þarf töfluna undir Fyrirtæki/Viðhald/Val kerfiseininga.

Bóka aðeins ”Móttekið nú”

Í sölupöntunum er hægt að stilla pöntun þannig að aðeins það magn sem er afhent reikningsfærist og eftirstöðvar verði að biðpöntun.  Sama virkni er nú möguleg í innkaupum.

”Magn” í fjárhagsskýrslum og áætlunum

Fyrir nokkru var bætt við möguleika á að skrá magn í fjárhagsfærslum. Þessi möguleiki er nú aðgengilegur í fjárhagsáætlunum og í fjárhagsskýrslum eru tveir nýir reitir til að birta magn.

Útbúa Excel skrá úr fjárhagsskýrslum

Uniconta birtir nú hausa og samtölur þegar Excel skrá fyrir fjárhagsskýrslu er keyrð. Notendur geta útbúið Excel skrá úr fjárhagsskýrslu með því að smella á Excel hnappinn efst til hægri. Einnig má smella á prentaratáknið og útbúa Excel skrá þaðan en þá erfist útlit skýrslunnar yfir í Excel.

Staðfesta eyðingu

Í listavalmyndum geta notendur eytt línum án staðfesting (og notað Ctrl-Z til að afturkalla ef ekki hefur verið vistað). Í notendastillingum má nú setja upp staðfestingu á eyðingu og þarf þá að staðfesta áður en gögnum er eytt.

Útbúa eigin C# klasa með gögnum fyrir Report Generator

Nú má útbúa hvaða skýrslu sem er í Report Generator þar sem notandinn getur notað „plugin“ til að útbúa eigin C# klasa með gögnum leyfa Report Generator að nota klasa til að útbúa skýrslu. Þetta er í raun það sama og gerist ef reikningur er keyrður í Uniconta en þar notum við reikningsklasa í C#.  Sá klasi samanstendur af gögnum sem við sækjum af gagnaþjóninum með C# í gegnum API. Næst keyrum við Report Generator með reikningsklasa til að útbúa reikning. Þannig getur forritari sett öll gögn sem eiga að birtast í skýrslu inn í C# klasa og látið Report Generator útbúa skýrsluna. Möguleikar Report Generator er því óþrjótandi! https://www.uniconta.com/developers-unipedia-global/custom-source-reporting/

Skanned

Virkja þarf Skanned undir Fyrirtæki/Viðhald/Val kerfiseininga. Þetta á einnig við um notendur sem nú þegar nota Skanned. Samþáttun við þjónustu Skanned hefur verið endurbætt og kerfið les nú fleiri reiti.

SEPA Direct Debit

Greiðslukerfið sem við notum til að stofna kröfur styður nú einning evrópsku SEPA Direct Debit lausnina. SEPA (Single Euro Payments Area) er evrópsk lausn þar sem að fyrirtæki geta innheimt greiðslur í evrum. Kerfið styður bæði einskiptisgreiðslur og endurteknar greiðslur.

Tímaskráningarkerfi

Í tímaskráningum er nú skjámynd fyrir Verk í Vinnslu þar sem notandinn hefur fulla stjórn á verkum í vinnslu og hægt er að reikningsfæra. Tímaskráningar má nú bæði samþykkja og bóka í samþykktarvalmynd. Einnig er mögulegt að fjöldauppfæra.

Aðrar nýjungar

  • Innlestur reikningar úr NAV
  • Innlestur minnispunkta reikninga úr C5
  • Stofna reikningslínur eldri reikninga sem pantanalínur
  • Notendur geta séð hver er eigandi skjals undir Fyrirtæki/Öll skjöl eða smellt á F6 í lykli