Sölupantanir
Stjórnun tilboða og pantana, stjórnun sendinga og framkvæmd reikningsfærslu
Sölupantanakerfi Uniconta er hægt að nota til að halda utan um tilboð og pantanir, sendingar og reikningagerð.
Tilboð og sölupantanir eru flokkaðar niður í tvö valmyndaratriði í Uniconta, sem gefur betri yfirsýn yfir útistandandi tilboð sem gæti þurft að fylgja eftir, ásamt yfirsýn yfir sölupantanirnar sjálfar.
Virkni
Fjöldauppfærsla
Hægt er að reikningsfæra margar standandi pantanir eða áskriftir með einni aðgerð í fjöldauppfærslu. Hægt er að bæta línum inn á margar sölupantanir samtímis í gegnum pantanabók. Einfalt er að endursenda eða endurprenta reikninga.
Áskriftir
Framleiðsluuppskriftir sem skráðar eru sem tilbúnar og framleiðslulínur þeirra eru vistaðar í Uniconta. Þannig geta notendur alltaf séð innihald framleiðsluuppskrifta sem hafa verið skráðar sem lokið.
Síðan er hægt að nota vistaðar framleiðslur til að stofna nýjar framleiðslupantanir sem innihalda sömu línur. Einnig er mögulegt að setja upp framleiðsluflokka, eins og framleiðsludeildir.
Gjaldmiðlar
Notendur sem eiga í viðskiptum við erlenda lánardrottna þurfa að sjálfsögðu að stofna innkaupapantanir og greiða o.s.frv. í erlendum gjaldmiðli. Uniconta gerir notendum kleift að stofna færslur í erlendum gjaldmiðli. Gengi gjaldmiðla er sótt daglega frá Seðlabankanum.
Sölupantanakerfið sér um að umbreyta tilboðum í sölupantanir á fljótlegan og auðveldan hátt.
Notendur geta sent tilboð, fylgiseðla og pöntunarstaðfestingar með tölvupósti og jafnvel sérsniðið tölvupóstskilaboðin eftir því um hvers konar skjal er um að ræða.
„Við sjáum mikla möguleika í því að upplýsingatæknikerfi okkar er að fullu samþætt Uniconta. Uniconta styður 20 tungumál, sem gerir okkur kleift að koma með ‘allt innifalið’ lausn á borðið. Við ætlum að halda áfram útbreiðslu okkar út fyrir Danmörku og erum í góðu jafnvægi með fullkomna, alþjóðlega lausn sem ræður við flækjustigið í öllu pöntunar- og afhendingarferlinu, sem og undirliggjandi reikningsfærslu og fjármálastjórnun.“
David Kingo Sønderkær, fjármálastjóri Takeout.dk
Aðgerðir í sölu
Grunngögn – Sölupantanahaus
- Sækja reikningslínur úr fyrri reikningum sem pöntunarlínur
- Pantanaflokkar til að stjórna pöntuðum birgðum – standandi pantanir og fastar pantanir
- Fastar pantanir, t.d. áskriftir, gjöld og þjónustusamningar
- Viðhengi (skjöl) sem prentast eða sendast með pöntun eða reikningi, t.d. teikningar, leiðbeiningar, gæðavottanir og myndir
- Tilvísunarreitir – tilv.yðar, tilv.okkar, tilboð, innkaupapöntun og tollanúmer
- Athugasemd við pöntun – innri lýsing á pöntuninni
- Afhendingastaður – velja úr nokkrum heimilisföngum sem hafa verið stofnuð í viðskiptavinaspjaldinu
- Stofna innkaupapöntun á grundvelli sölupöntunar
- Yfirlit pöntunar með framlegð fyrir hverja pöntun og samtölu fyrir allar pantanir
- Skoða gögn sölupöntunar í mismunandi sniði
- Færa inn starfsmann í pöntunina
- Stofna pöntun úr tilboði og vista tilboðið
- Gjalddagi á pöntun
- Í sölupöntun er hægt að sjá á hvaða verkfærslum pöntun er byggð á. Að auki geta notendur fjarlægt línur sem þeir óska ekki eftir að reikningsfæra og fresta þeim til næsta mánaðar. Síðan er hægt að endurskapa pöntunarlínurnar.
- Lágmarks innkaupamagn í birgðavörum
- Svæði í pöntunarlínunni sýnir hvort lotu- eða raðnúmer er tengt
- Tilv.yðar. á pöntuninni er færð inn á opnar færslur og birtist þannig á hreyfingayfirliti
- Flýtileit eftir vörunúmeri og vörulýsingu
- Ítarleg leit með uppflettingu í birgðaspjalda eftir flokkum, vörumerki og tegund
- Flýtiinnfærsla á mörgum vörum í einu, magn er slegið inn í vörulista og svo breytt í pantanalínur
- Stofna athugasemd á birgðalínunni eða nota reitinn Texti fyrir athugasemdir
- Ný lína stofnast ef texti er langur þannig að allar upplýsingar birtast
- Hægt að skrifa beint á tekjulykil í stað vörunúmers
- Stofna sniðmát – færir sjálfkrafa inn texta- og birgðavörulínur úr sniðmátinu
- Merkja vörulínur birgða í innkaupalínum og birgðafærslum
- Birtir framlegð og framlegðarhlutfall á vörulínu birgða þar sem söluverð er reiknað út frá kostnaðarverði
- Tilgreinir hvort hægt sé að reikningsfæra vörulínuna
- Stjórna biðpöntunum á birgðavörulínum (hlutaafhendingar)
- Setja inn millisamtölur á vörulínur
- Setja inn marga reiti úr birgðaspjaldinu til dæmis: strikamerki
- Skrá starfsmenn í birgðalínunni
- Færa inn virðisaukaskatt á vörulínuna ef valin vara er án VSK
- Prenta/tölvupóstur: tilboð, pöntunarstaðfesting, fylgiseðill og tiltektarlisti
- Reikningsfæra mótteknar vörur – setja skal gátmerki við reikningsfærslu til að tilgreina að reikningsfærsla eigi aðeins við um afhentar vörur
- Leyfir notendum að færa inn vöruvíddasamsetningu 1 og 2 á sölu- og innkaupapöntunum
- Jöfnun runu- og númeraraðarinnar keyrir í samstilltum glugga
- Uniconta man samstillingarnar
- „Bæta við afbrigðum“ á flýtireikningum. Veljanlegt í pöntunarlínunum Hægt er að velja það á pöntunarlínunum
- Endurreikna verð á pöntunum
- Hafa nokkrar pantanir með á sama reikningi
- Þegar pöntunarlína er stofnuð og lotunúmer valið geta notendur nú séð allar vöruhúsastaðsetningar þar sem lotunúmerið er tiltækt og valið eitthvert þessara vöruhúsa
- Í pöntunarlínum er hægt að draga í leitarreit þar sem hægt er að færa inn vörunúmer viðskiptavinar. Þá leitar Uniconta í „vörunafnaflokknum“ til að finna þetta vörunúmer, sem vörunúmer viðskiptavinar
- F7 á flýtireiknings- og sölupöntunarlínum
- Valkostur gjaldaflokks „aðeins einu sinni“ þar sem skatturinn birtist aðeins einu sinni í pöntuninni, jafnvel þótt nokkrar vörur hafi þessa skyldu.
- Ef afhendingardagsetningu er breytt í pöntunarhausnum breytist dagsetningin í línunum sjálfkrafa
- Hægt er að setja inn teikn í reikningslínurnar sem vísa til viðhengja sem viðtakandi reiknings getur smellt á og birt á vefnum
- Í pöntunum og innkaupum er hægt að færa inn bókunartexta í pöntunarhausinn sem síðan verður fluttur í fjárhagsfærslurnar og kreditfærsluna.
- Afrita svæði úr pöntunarlínum í fjárhagsfærslur. Í ýmsum tilfellum afritar Uniconta notandaskilgreind svæði með sama nafni yfir skrár. Nú eru reitir úr pöntunarlínum og pöntunarhausum einnig afritaðir í fjárhagsfærslur.
Skýrslur
- Reikningasafn – stofna nýjar pantanir sem byggja á eldri reikningum
- Skjalasafn afhendingarseðla – Skoða og endurprenta fylgiseðla
- Pöntunarlínur – eftirfylgndi endurtekinna pantana
- Tilboðslínur – eftirfylgni tilboða
- Senda í prentara, flytja út í Microsoft Excel og Word, flytja út í CSV-skrár
- Þyngd, ummál og pakkningar á pöntun
- Samþykkt sölu- og innkaupa
- Í pöntunum og innkaupum er nú hægt að færa inn bókunartexta í pöntunarhausinn sem síðan verður fluttur í fjárhagsfærslurnar og lánardrottnafærsluna.
Form
- Tilboð, pöntunarstaðfestingar, tiltektarlistar, afhendingaseðlar, reikningar, bráðabirgðareikningar, kreditreikningar
Uppfærslur – nýir reitir, nýir listar, nýir hnappar, nýjar skýrslur
- Verkfærakistan er innifalin í öllum áskriftum
- Ný sölupöntunarsvæði
- Nýjum skýrslum bætt inn í staðlaðar skýrslur
Upplýsingar um kerfiseiningar Uniconta
Skráðu þig fyrir ókeypis prófun
Prófaðu Uniconta ókeypis í 30 daga til að kynnast öllum kerfiseiningum og virkni. Eftir 30 daga ákveður þú hvort þú viljir gerast áskrifandi að Uniconta eða ekki.
Sögur viðskiptavina
Lestu meira um hvernig viðskiptavinir okkar njóta góðs af því að nota Uniconta í daglegum viðskiptum sínum.