Sjálfvirkir verkferlar með viðskiptareglum
Skapaðu þínar eigin viðskiptareglur og sjálfvirka ferla í Uniconta með lágmarks fyrirhöfn.
Frelsi til að hanna þína eigin verkferla
Hannaðu sjálfvirkar reglur í Uniconta og sparaðu tímafreka handavinnu á hverjum degi.
Sjálfvirknivæddir ferlar
Settu upp reglur sem framkvæma sjálfkrafa aðgerðir í kerfinu. Sparaðu handavinnu og láttu Uniconta vinna verkið
Villulaus skráning gagna
Sannreyning gagna og eftirfylgni með ferlum. Forðastu villur og tryggðu samræmi og áreiðanleika gagna.
Bregst sjálfkrafa við breytingum
Láttu kerfið bregðast við þegar gögn eru skráð eða þeim breytt. Ræstu aðgerðir sjálfkrafa.
Klæðskerasniðnir ferlar
Hannaðu reglur þannig að kerfið vinni eftir þínum þörfum og styðji þína verkferla.
Fáðu kynningu á Uniconta
“
Ég skipti út gamla bókhaldskerfinu og valdi Uniconta vegna þess að það er notendavænt, einfalt, hraðvirkt, sveigjanlegt og ekki síst skýjalausn. Þetta er kerfi sem hentar okkur vel.
Snorri Páll Jónsson
Kólus
Aðgerðir í viðskiptareglum
Sjálfvirk sannreyning gagna
Tryggir að gögnin þín uppfylli alltaf kröfur þínar – strax þegar þau eru stofnuð eða breytt í kerfinu. Með viðskiptareglum geturðu skilgreint nákvæmar reglur um hvað er leyfilegt og hvað ekki.
Þú getur sett upp reglur eins og:
- Ef pöntun er stofnuð án afhendingardags → þá læsist hún
- Ef vara er skráð án réttrar staðsetningar → þá birtist villa
- Ef starfsmaður skráir tíma án lýsingar → þá er skráningunni hafnað
Þannig getur þú gripið mögulegar villur strax í stað þess að skapa aukavinnu síðar. Þú færð réttari gögn, færri leiðréttingar og mun stöðugri rekstur.
Ræstu aðgerðir sjálfkrafa
Láttu kerfið bregðast sjálfkrafa við þegar eitthvað gerist. Með viðskiptareglum getur þú sett upp rökfræði sem ræsir aðgerðir út frá breytingum á gögnum eða tilteknum atburðum í kerfinu.
Það getur t.d. verið:
- Ef pöntun fer yfir ákveðna upphæð → þá er hún sjálfkrafa send til samþykktar
- Ef staða verks breytist → þá sendist tilkynning á ábyrgðaraðila
- Ef vara nær lágmarksbirgðum → þá er aðgerð ræst
Þetta tryggir að ferlarnir þínir stoppi aldrei og að næsta skref sé alltaf tekið sjálfkrafa.
Stýring reita og notendaviðmóts
Gerðu innslátt hraðari og skýrari með kvikum reitareglum.
Þú getur látið Uniconta stýra því hvaða reitir birtast, læsast eða eru áskildir út frá gögnum sem eru slegin inn. Það leiðir notandann örugglega í gegnum ferla án óþarfa truflunar.
Ef notandi velur til dæmis ákveðinn vöruflokk getur kerfið sjálfkrafa gert „Verknúmer“ að áskildum reit eða læst „Afsláttar“-reitnum, þannig að ferlum sé alltaf fylgt.
Tengdar einingar

Viðskiptavinur
Stjórn á viðskiptavinum, reikningum og greiðslum í einu samfelldu flæði.
VIÐSKIPTAVINIR ›

Lánardrottinn
Reikningar, greiðslur og birgjastjórnun á einum stað.
LÁNARDROTTNAR ›

Uniconta Scan
Sjálfvirk fylgiskjalaskönnun og greiðslusamsvörun.
UNICONTA SCAN ›

Bankalausnir
Bankasamþætting og afstemming sem sparar tíma og dregur úr villum.
BANKALAUSNIR ›

Viðskiptatengsl - CRM
Miðlægt viðskiptatengslakerfi með tækifærum, tengiliðum og eftirfylgni.
VIÐSKIPTATENGSL - CRM ›

Mælaborð
Innsýn í fjárhag og rekstur í rauntíma. Uppsett lykiltölum sem skipta þig máli.
MÆLABORÐ ›

Eignakerfi
Heildaryfirlit yfir eignir, frá kaupum til afskrifta og sölu.
EIGNAKERFI ›

Skýrslusmiður
Hannaðu skýrslur með staðsetningu og samsetningu reita, síum og þeim gögnum sem þú þarft.
SKÝRSLUSMIÐUR ›
Við bjóðum upp á spjall um þínar þarfir - án skuldbindinga
Ef þig vantar upplýsingar eða hefur einhverjar spurningar máttu endilega fylla út formið.
Eða hafðu samband við okkur í síma:
(+354) 415 4600