Xpress afgreiðslulausn – kassakerfi sem vinnur beint á Uniconta

Xpress er nýr framendi á Uniconta sem ætlaður er fyrir smásölu. Kassakerfið erfir alla helstu eiginleika Uniconta sjálfkrafa – án sérstakrar samþáttunar og án tvískráningar.

Einföld uppsetning – sömu gögn í kassa og fjárhag

Þar sem Xpress vinnur beint á sama grunni og Uniconta er uppsetningin einföld og þægileg. Ekki er þörf á sérstökum uppgjörum í lok dags – einungis er tekin staða á sjóði í peningaskúffu í lok afgreiðsludags.

Xpress keyrir á Windows-tölvum og styðst við hefðbundinn vélbúnað, s.s. snertiskjái, kvittanaprentara og peningaskúffu.

Viðskiptavinir og verðlistar

Skráðir viðskiptavinir í Uniconta eru aðgengilegir beint í Xpress með viðskiptaskilmálum, verðlistum viðskiptavina og afsláttum.

Beintenging við posa

Upphæðin færist beint í posann, þráðlaust eða beintengt. Xpress vinnur með flestum færsluhirðum á Íslandi.

Gjafakort og inneignir

Gefðu út gjafakort og inneignir í Xpress og taktu við greiðslum með þeim í versluninni.

Taxfree

Tenging við Iceland Taxfree – Xpress prentar út Taxfree-strimil fyrir viðskiptavininn.

Netgíró og Pei

Xpress styður greiðslur í gegnum bæði Netgíró og Pei.

Reikningur stofnast í Uniconta

Við hverja sölu stofnast reikningur í Uniconta sem hægt er að senda rafrænt til viðskiptavinarins.

Sjáðu hvernig Rafport notar Uniconta

“

Uniconta styður mjög vel við okkar rekstur.

Jón Þór Guðjónsson
Rafport

Helstu eiginleikar Xpress

Verð á Xpress

Xpress afgreiðslulausn
Verð fyrir hvern kassa
12.995 kr./mán. án vsk
Hýsing og uppfærslur innifaldar.

Öll verð eru án virðisaukaskatts (vsk).

Fáðu kynningu á Xpress

Aðrar kerfiseiningar

Við bjóðum upp á spjall um þínar þarfir - án skuldbindinga

Ef þig vantar upplýsingar eða hefur einhverjar spurningar máttu endilega fylla út formið.

Eða hafðu samband við okkur í síma:

(+354) 415 4600

Við vinnum úr persónugögnum þínum í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.