Prófaðu Uniconta frítt í 30 daga
Ekkert greiðslukort, engin skuldbinding, engin uppsögn nauðsynleg
Hefja prufu
Takk fyrir að skrá þig hjá Uniconta.
Við höfum sent tölvupóst á netfangið þitt með innskráningarupplýsingunum þínum.
Innskráning:
Lagað að þínum þörfum
Uniconta er hannað þannig að þú getur lagað kerfið nákvæmlega að þínum þörfum og óskum.
Sjálfvirknivæddu ferlana þína
Uniconta sjálfvirknivæðir dagleg ferli – frá bókhaldi og bankaafstemmingu til samþykkta, reikningagerðar og skýrslugjafar.
Allt tengist í einu kerfi
Allar einingar kerfisins tengjast saman, þannig að gögnin þín uppfærast í rauntíma þvert á allt fyrirtækið – án ytri samþættinga.
Sveigjanleiki sem styður við vöxt
Með Uniconta færðu sveigjanlega lausn sem vex með fyrirtækinu þínu og samsvarar þörfum þínum í dag og á morgun.
Við erum stolt af ánægðum viðskiptavinum okkar
Ertu með spurningar um að hefjast handa?
Get ég skipt yfir í Uniconta úr öðru bókhaldskerfi?
Já, það geturðu. Margir velja Uniconta sem næsta skref þegar þeir vilja sveigjanlegra og nútímalegra kerfi. Við mælum með að þú hafir samband við samstarfsaðila sem getur aðstoðað þig við að flytja gögnin þín og tryggt að skiptin yfir í Uniconta gangi einfaldlega og örugglega fyrir sig.
Get ég lagað Uniconta að mínum þörfum?
Já. Uniconta er byggt upp sem einingaskipt kerfi, þannig að þú getur bætt við þeirri virkni sem þú þarft – án þess að greiða fyrir það sem þú þarft ekki.
Að auki geturðu sérsniðið allt frá skjámyndum, heitum, töflum og skýrslum til sjálfvirkra verkferla, þannig að kerfið styðji nákvæmlega þitt vinnulag.
Get ég samþætt Uniconta við önnur kerfi?
Já, Uniconta er með opin API og fjölda tilbúinna samþættinga við vinsælar lausnir eins og vefverslanir, launakerfi, CRM og banka
Ef þú ert með kerfi sem er ekki þegar samþætt getur samstarfsaðili þinn eða forritari auðveldlega tengt það við Uniconta í gegnum API. Þannig geturðu safnað öllum gögnum á einn stað og dregið úr handvirkum ferlum.
Kostar eitthvað að prófa Uniconta?
Nei, þú getur prófað Uniconta ókeypis í 30 daga. Prufutímabilið veitir fullan aðgang að kerfinu, þannig að þú getur prófað virknina og séð hvernig Uniconta hentar fyrirtækinu þínu. Þú skuldbindur þig ekki til neins og þegar þú ert tilbúin(n) geturðu auðveldlega haldið áfram í áskrift.
Hvernig kemst ég af stað sem nýr notandi?
Það er auðvelt að byrja. Stofnaðu ókeypis prufuaðgang, veldu þær einingar sem þú vilt prófa og fylgdu leiðbeiningunum okkar skref fyrir skref.
Þegar þú ert tilbúin(n) geturðu haft samband við samstarfsaðila til að fá aðstoð við uppsetningu og innflutning gagna.
Get ég fengið hjálp ef ég festist?
Já. Þú hefur aðgang að þjónustuveri, leiðbeiningum og samstarfsaðilum sem geta aðstoðað þig við uppsetningu, svarað spurningum og veitt kennslu. Einnig er að finna myndbandsleiðbeiningar og annað leiðbeiningarefni sem hjálpar þér skref fyrir skref.
Get ég notað Uniconta þó ég úthýsi bókhaldinu?
Já. Margir endurskoðendur og bókarar vinna nú þegar í Uniconta. Þú getur veitt endurskoðandanum þínum aðgang að bókhaldinu, þannig að þið vinnið í sama kerfi og hafið alltaf aðgang að uppfærðum gögnum. Það sparar tíma fyrir báða aðila.
“
Ég skipti út gamla bókhaldskerfinu og valdi Uniconta
vegna þess að það er notendavænt, auðvelt, hraðvirkt, sveigjanlegt
og ekki síst; með lausnir í skýinu. Þetta er kerfi sem hentar okkur vel.
Snorri Páll Jónsson
Kólus
Uniconta lagar sig að þínum þörfum –
sveigjanlegt, öflugt og skilvirkt

Fjárhagur
Fáðu fulla yfirsýn og stjórn á fjármálum fyrirtækisins með öflugu fjárhagskerfi.
FJÁRHAGUR ›

Pantanir og innkaup
Stjórnaðu sölupöntunum og innkaupum á skilvirkan hátt í einu samræmdu ferli með fullri yfirsýn.
PANTANIR & INNKAUP ›

Vörustjórnun
Birgðir og vörustjórnun í einu kerfi – fáðu stjórn á birgðum til ráðstöfunar, afhendingar og vöruflæði.
VÖRUSTJÓRNUN ›

Framleiðendaábyrgð
Samþættuð framleiðendaábyrgð heldur utan um úrvinnslugjöld.
FRAMLEIÐENDAÁBYRGÐ ›

Verkbókhald
Skráðu tíma, akstur og útgjöld og fylgstu með framvindu hvers verks.
VERKBÓKHALD ›

Framleiðsla
Meðhöndlaðu framleiðsluuppskriftir og efnisnotkun.
FRAMLEIÐSLA ›

CRM
Miðlægt viðskiptatengslakerfi með tækifærum, tengiliðum og eftirfylgni.
VIÐSKIPTATENGSL - CRM ›

Mælaborð
Innsýn í fjárhag og rekstur í rauntíma. Uppsett með lykiltölum sem skipta þig máli.
MÆLABORÐ ›

Aðlögun
Fáðu sérsniðna lausn sem passar nákvæmlega við gögnin ykkar og verkferla.
AÐLÖGUN ›

Skýrslusmiður
Hannaðu skýrslur með staðsetningu og samsetningu reita, síum og þeim gögnum sem þú þarft.
SKÝRSLUSMIÐUR ›

Eignakerfi
Heildaryfirlit yfir eignir, frá kaupum til afskrifta og sölu.
EIGNAKERFI ›

Viðskiptavinur
Stjórn á viðskiptavinum, reikningum og greiðslum í einu samfelldu flæði.
VIÐSKIPTAVINUR ›

Lánardrottinn
Reikningar, greiðslur og birgjastjórnun á einum stað.
LÁNARDROTTINN ›

Uniconta Scan
Sjálfvirk fylgiskjalaskönnun og greiðslusamsvörun.
UNICONTA SCAN ›

Bankalausnir
Bankasamþætting og afstemming sem sparar tíma og dregur úr villum.
BANKALAUSNIR ›

Fyrirtæki
Fáðu heildaryfirlit yfir fyrirtækið, notendur, aðgangsréttindi o.fl. á einum stað.
FYRIRTÆKI›
Þarftu hjálp?
Hringdu eða sendu okkur línu og við aðstoðum með ánægju.