Uniconta styður við vöxt takeout
Eftir að hafa markaðsett nýja hugbúnaðarlausn sem skilaði 40% tekjuaukningu sátu forsvarsmenn takeout frammi fyrir því að gamla bókhaldskerfið væri ekki að nógu öflugt til að halda utan um reksturinn, en takeout hefur getið sér gott orð fyrir að taka við pöntunum af matseðlum veitingahúsa og afhenda matinn heim að dyrum viðskiptavina.
David Kingo Sønderkær tók nýlega við stjórnartaumunum hjá takeout og sá fljótt að fyrirtækið þyrfti að tryggja stjórnendum réttar rauntímaupplýsingar og því væri ekki hægt að reiða sig eingöngu á úthýst bókhald sem skilaði uppgjörum mánaðarlega.
”Við vildum ekki flytja gagnaþjóna inn á gólf til okkar en notum skýjaþjónustu fyrir okkar hugbúnaðarlausnir og vissum að það væri eina rétta leiðin,” segir David.
Hann hóf í framhaldi að skoða markaðinn en þar sem takeout var með mjög sértækar þarfir um útfærslu sölureikninga, útreikning söluþóknana og samskipti við viðskiptavini og birgja hentuðu eldri lausnir alls ekki.
Að auki var mikilvægt að hægt væri að samþátta bókhaldskerfið við pantana- og útkeyrslukerfi takeout. Eftir mikla yfirlega var Uniconta eina kerfið sem kom til greina.
Frá draumsýn til veruleika
Markmiðið var að nýtt lausnamengi myndi ekki bara styðja við pantanir og reikninga, heldur einnig vörustjórnun, tengsl við veitingastaði og viðskiptavini. Til þess þurfti tengingar á milli margra ólíkra kerfa auk þess að tengja sendla fyrirtækisins í gegnum app.
David hafði áður verið yfirmaður sendla og þekkti reksturinn eins og lófa sinn.
”Við hjá takeout sjáum um allan ferlinn frá pöntun til afhendingar. Við útvegum veitingastöðum öpp og forrit, sjáum um samþáttun við þeirra kerfi og notum GPS tengda lausn til að leiðbeina sendlum og tryggja að viðskiptavinir fái heitan mat heim að dyrum,” útskýrir David.
Fyrsta skrefið var að tengjast Uniconta til að útbúa sölureikninga. Nú vinnur takeout að því að gera Uniconta að kjarna í öllum ferlum, frá pöntun til afhendingar.
Snuðrulaust samstarf
”Samstarfið við þjónustuaðila gekk snuðrulaust. Við þekkjum vel til samþáttunar í gegnum forritaskil (API) en þjónustuaðilinn var fljótur að skilja okkar áskoranir og ráðleggja okkur um hvernig best væri að nýta Uniconta,” segir David.
Helstu kostur Uniconta fyrir takeout?
Uniconta býður alla virkni til að stýra fjármálum fyrirtækja án þess að flækja málin. Sölureikningagerð og afstemming banka var sjálfvirknivædd með skjótum hætti.
David hefur alltaf gott yfirlit yfir reksturinn og stöðu fjármála hvar sem hann er staddur. Þannig getur hann upplýst fjárfesta um stöðuna hvenær sem er og hvaðan sem er.
Heimsyfirráð eða dauði?
takeout er í fullum rekstri í Danmörku, Eystrasaltsríkjunum og Írlandi. Fyrirtækið stefnir að opna fljótlega í Bretlandi, Svíþjóð og Noregi.
”Við sjáum mikla möguleika í því að vera með kerfið okkar samþáttað við Uniconta. Uniconta styður tugi tungumála og auðveldar okkur að opna nýja markaði. Við ætlum að vaxa alþjóðlega og erum vel í stakk búin með alþjóðlegt bókhaldskerfi sem er stutt í flestum löndum,” segir David að lokum.
Um takeout
Sérstaða takeout er að bjóða viðskiptavinum að velja á milli rétta frá fyrsta flokks veitingastöðum sem þekktir eru fyrir gæði og þjónustu. Fyrirtækið sér um allan ferilinn frá pöntun til afhendingar.
Fólkið að bak við takeout hefur áratuga reynslu í bransanum og getur því tryggt framúrskarandi þjónustu. Lausn takeout byggir á nýjustu tæki með áherslu á einfaldleika og upplifun notenda. Þannig er auðvelt að finna og panta mat frá uppáhaldsveitingastaðnum og fá hann afhentan heim að dyrum.