Bætt víddarsíun
Þú getur nú valið lista víddum til að sía eftir í stað einnar víddar áður.
Samþykkt á dagbókarfærslum
Nú er hægt að stilla dagbækur þannig að samþykkja þarf dagbókarlínur í “Samþykkt” dálki. Aðeins er hægt að bóka dagbækur sem eru samþykktar.
Stofna mótfærslu í dagbók
Það er nýtt hak í uppsetningu dagbóka þar sem hægt er að láta kerfið stinga upp á mótfærslu sem skilar samtölu dagbókar í 0.
Loka fyrir neikvætt Debet / Kredit
Nú er hægt að loka fyrir neikvæð formerki í debet og kredit dálkum. Neikvæðar tölur færast þá í yfir í hinn dálkinn.
Sjálfvirkar númeraraðir fyrir viðskiptavini, lánardrottna, vörur, verk og eigin töflur
Nú er hægt að setja upp númeraseríur sem úthluta nýjum númerum á viðskiptavini, lánardrottna, vörur, verk og eigin töflur ef gildi er ekki slegið inn.
Bókunarstýringar vörulínu og viðskiptavinar
Nú er hægt að setja upp töflu fyrir tekjur og vörunotkun sem taka tillit til viðskiptavinaflokks og vörulínu. Þessi stýring er í valmyndum viðskiptavina-, lánardrottna- og vöruflokka.
Breyta lykli á bókaðri færslu
Á sama hátt og hægt er að breyta vídd á færslu er hægt að breyta lykli á bókaðri færslu.
Sameina víddir
Nú er hægt að sameina tvær víddir eins og vörur. Þetta er gert í víddaruppsetningu.
Uppskriftir sem safnlistar
Í uppskriftum (ekki framleiðsluuppskriftum) er nú hægt að velja hvort að aðalvaran er bókuð eða ekki. Þannig virkar uppskriftin eins og safnlisti.
Endurreikna kostnaðarverð á vöruhús/staðsetningu
Í fyrirtækisvalmynd er nú hægt að ákveða hvort að endurreikningur kostnaðarverðs taki tillit til vöruhúss og staðsetningar.
Innskráningarkenni í starfsmannalista
Ef innskráningarnafni starfsmanns er bætt í starfsmannalista getur Uniconta tengt starfsmann við sölu- og innkaupapantanir þar sem kerfið þekkir starfsmann við innskráningu.
Tengsl innkaupa- og sölupantana
Kerfið vistar nú vensl á milli sölu- og innkaupapantana ef önnur er stofnuð út frá hinni. Hægt er að slá inn vensl í reit á pantanaspjaldi.
Partner DLL fyrir tiltekið fyrirtæki
Partner DLL er nú hægt að setja upp á ákveðið fyrirtæki.
Uniconta á Microsoft Store
Uniconta er nú aðgengilegt í Microsoft Store. Allar nýjar útgáfur koma þar inn.
Aðrar nýjungar
- Pantanayfirlit sýnir nú fjölda lína og magn á línum.
- Hægt er að stilla hvort Uniconta reyni að jafna viðskiptavina- og lánardrottnafærslum sjálfkrafa