Útgáfudagur: 17. júní, 2018
Nýjar aðgerðir í sölu- og innkaupapöntunum
Ný og skilvirk aðgerð er nú í boði í sölu- og innkaupapöntunum.
Ef smellt er á hnappinn “Bæta við vörum” opnast valmynd með lista sem inniheldur allar vörur og dálkur fyrir magn þar sem notandinn getur slegið inn magn hverrar vöru sem færast á inn í pöntun. Hægt er að opna og loka valmyndinni með F8 sem stofnar einnig línur. Þannig gertur notandinn leitað í vörulista og slegið inn magn. Þegar allar vörur hafa verið valdar getur notandinn smellt á hnappinn “Valið” til að sjá valdar vörur og magn. Næst getur notandinn smellt á “Stofna” og allar vörur þar sem magn hefur verið slegið inn stofnast í pöntun. Það er hægt að bæta vörum við í pöntun með sömu aðferð. Hægt er að aðlaga snið skjámyndarinnar eftir þörfum hvers notanda.
Margir gluggar / skjáir
Í “Stillingum notendaviðmóts” í sniðvalmynd geta notendur nú valið “Ytri gluggi” í reitnum “Festingargluggi” og þá er hægt að færa gluggan yfir á annan skjá eins og í stafrænum fylgiskjölum. Mjög hentugt fyrir þá sem vinna með tvo skjái eða fleiri.
Loka fyrir sölu eða innkaup
Tveir nýjir reitir eru komnir inn í birgðaspjald: “Fela í sölu” og “Fela í innkaupum”. Ef hakað er í annan eða báða reiti mun viðkomandi vara ekki birtast í sölu- eða innkaupapöntunum.
Endurpöntunarlisti
Notendur geta nú sameinað endurpantanir á margar birgðageymslur. Einnig má nú færa vöru á milli vöruhúsa án þess að gera millifærslu.
Bóka framleiðsluvörur sem fullbúnar
Þegar framleiðsla er skráð tilbúin vistar Uniconta nýju vörurnar og uppskriftarvörur í nýja lista sem nota má til að stofna nýja framleiðslu.
Framleiðslubók
Uniconta inniheldur nú framleiðsludagbók eins og innkaupa- og sölupantanabækur. Notendur geta slegaið inn línur fyrir framleiðslu og vistað þær á viðeigandi framleiðslu.
Breyta verknúmeri á verklínum
Í uppfærslu 70 var mögulegt að breyta gildum á verklínum sem hafa verið bókaðar. Nú er einnig hægt að breyta verknúmeri og færa þannig verklínu á nýtt verk.
Opnunarstöður í Fjárhag
Notendur geta nú “Fjarlægt opnunarstöður” í uppsetningu Fjárhagsárs. Þegar opnunarstöður hafa verið fjarlægðar hættir Uniconta að uppfæra opnunarstöður þegar bókað er á eldra fjárhagsár. Notendur geta svo alltaf keyrt nýjar opnunarstöður.
Tilvísun í fylgiskjal
Þegar skrá eða stafrænt fylgiskjal er fært inn í Uniconta vistast það á Uniconta gagnaþjóninum. Notendur geta nú valið að láta Uniconta eingöngu vista tilvísun í skránna sem hentar vel ef að notandinn vill vista skjöl á eigin drifi og sækja skjölin þaðan við opnun í stað þess að kalla eftir þeim frá Uniconta gagnaþjóninum.
Villukladdi fyrir reikninga á tölvupósti
Uniconta er nú með “Villukladda” undir Viðhaldi í Viðskiptavinakerfinu. Ef villur koma upp við sendingu reikninga, reikningsyfirlita og annara skjala með tölvupósti birtast þær í villukladda þar sem hægt er að skoða hugsanlegar villur.
Tenging stafrænna fylgiskjala við færslur
Nú er auðveldar að skoða tengingu stafrænna fylgiskjala við færslur þar sem t.d. hægt er að kalla fram færslur hvers fylgiskjals.
Endurtölusetning fylgiskjala
Ef dagbókarlínu er eytt eftir að hún hefur fengið fylgiskjalsnúmer myndast göt í númeraröð. Uniconta býður nú upp á “Endurtölusetningu” sem úthlutar nýjum fylgiskjalsnúmerum á dagbókarlínur þannig að ekki myndist gloppur í númeraröð.
Lánardrottnagreiðslur
Notendur geta nú útbúið eigin texta á greiðslur til lánardrottna sem birtist á færsluyfirlitum banka. Reitinn “Skilaboð” i´greiðslutillögum má t.d. nýta til að senda skilaboð til móttakanda greiðslu.
Forskriftir með síum
Nú er með forskriftum hægt að stýra síun á listum t.d. þannig að sölumenn geti aðeins séð eigin sölupantanir í Uniconta. Hægt er að loka á möguleikann til að fjarlægja síur ef þess er óskað.
Gagnaflutningur úr C5 með reikningum
Nú er hægt að færa öll gögn úr C5 yfir í Uniconta. Microsoft hættir að styðja C5 í janúar 2019 og hver að verða síðastur að skipta yfir.
Aðrar nýjungar
- Hægt að hengja skjöl við “Flýtireikninga”
- “Vörumerki” og “Flokkur” eru nýjir reitir á birgðaspjaldi
- “Áfangi” er nýr reitur á verkspjaldi
- ”+” í dagsetningarreit bætir við degi
- ”-” í dagssetningarreit dregur frá dag
- ”d” í dagssetningarreit gefur kerfisdagssetningu
- Notendur getu nú bætt við tölvupóstfangi við útsendingu á reikningsyfirlitum, vaxtareikningum og innheimtubréfum
- ’Table browser’ under Tools/Report Generator, which shows the fields on each of our tables
- In user defined menu set up a parameter that is transferred to a scripting method ‘Arguments: UserParm=MyParameter’ can be applied in the user’s script code in order to manage, e.g. filters or rights or what is shown or what is hidden.
- In the user defined menu set up, users can now determine which layout a form is opened with. ‘Arguments: Layout=MyLayout’