Útgáfudagur: 22. júlí, 2018
Sjálfgefin gildi fyrir reiti og valkosti
Margir viðskiptavinir hafa óskað eftir því að geta stýrt gildi fyrir hermun í dagbókum og reikningum. Við höfum því hannað kerfi þar sem hægt er að stilla sjálfgefin gildi fyrir reiti. Í aðgerðaglugganum er nú píla sem hægt er að smella á til þess að stilla gildi.
Unidr Fyrirtæki/Viðhald geta notendur sett upp sjálfgefin gildi og valið hvort að kerfið geri kröfu um að ákveðnir reitir séu fylltir út.
Skýrsla yfir fráteknar birgðir
Við höfum bætt við skýrslu sem sýnir hvort að birgðir eru fráteknar, pantaðar eða afhendar. Skýrslan vinnur þvert á allar kerfiseiningar og auðveldar notendum að sjá hvar birgðir eru í ferlinu.
Frátektir í Uppskriftum (BOM)
Uniconta setur ekki vörur sem eru hluti af uppskrift í frátekt í pöntun. Nú er hins vegar hægt að sjá frátektir í uppskriftum í Endurpöntunarlista. Þetta er einföld skýrsla og vistast ekki í kerfinu.
Tilvísunarnúmer í Verkbókhaldi
Í innkaupum og sölu er textareitur sem heitir Tilvísun og er ætlaður til að slá inn tilvísunarnúmer. Þessum reit hefur nú verið bætt inn Verkbókhald.
Reikningsfæra afhentar vörur
Við stofnun reiknings er hægt að haka í reit sem að reikningsfærir afhentar vörur.
Global script
Ef þú setur skriftu í aðalvalmynd keyrir hún núna þegar skipt er um fyrirtæki. Lestu meira hér: Global script.
Aðrar nýjungar
- Ný birgðaskýrsla sem sýnir Uppskriftir (BOM)
- Hægt að stýra aðgangi að kerfiseiningunni Fyrirtæki
- Hægt að raða línum í Dagbók – röðun vistast ekki við bókun
- Tvær nýjar aðgerðir í Dagbók undir “Aðgerðir” til að keyra inn dagssetningar og texta
- Víxla formerkjum í Fjárhagsskýrslum þannig að tekjur birtist með jákvæðum formerkjum og kostnaður neikvæðum
- Hægt að prenta út Reikning án þess að birta hann fyrst á skjá
- VSK á greiðsluafslætti má nú snúa við. Stilling er í Greiðsluskilmálum
- Ný skýrsla fyrir framleiðslupantanir