Útgáfudagur: 26. ágúst 2018

Umreikningur eininga

Birgðakerfi Uniconta getur nú umreiknað einingar þannig að hægt er að kaupa og selja einingar sem eru sem notandi ákvarðar.

Til að virkja þennan möguleika þarf að haka í “Umreikningur eininga” í Fyrirtækisvalmynd undir Viðhald/Stillingar á virkni. Næst þarf að setja umreikningsflokk í undir Birgðir/Viðhald. Flokkurinn inniheldur línur þar sem skilgreina má formúlur fyrir umreikning. Ekki þarf að setja upp umreikning fyrir rúmfræðilegar einingar (eins og metra og sentimetra) þar sem að Uniconta kerfið þekki slíkan umreikning. Umreikning þarf hins vegar að setja upp á milli eininga eins og kassa og stykkja.

Umreikning skal setja upp á eftirfarandi hátt: “Umreikna úr einingu” * Stuðull = ”Umreikninga í einingu”, t.d.  ”1 kassi * 12 = 12 stk.”

Þegar búið er að setja upp flokk þarf að tengja flokkinn við birgðaspjald þannig að hægt sé að umreikna. Einnig má skilgreina staðlaðar sölu- og innkaupaeiningar á birgðaspjaldi.

Einnig er hægt að skilgreina einingar í verðlista í Birgðir/Viðhald. Þegar reikningur er uppfærður vistast allar línur í grunneiningu og birtast á birgðaspjaldi. Við endurprentun reiknings reiknar Uniconta sjálfkrafa sölu- eða innkaupaverð á reikningi út frá einingum. Þannig er tryggt að allar hreyfingar vörur eru í grunneiningu og birgðaskýrslur breytist ekki.

Samtölur í verkbókhaldi

Líkt og í öðrum einingum er nú hægt að birta millisummur í verkbókhaldi.

Hermun á stöðum Viðskiptavina og Lánardrottna

Líkt og í fjárhagskýrslum getur Uniconta nú hermt dagbókur í stöðum Viðskiptavina og Lánardrottna.

Nýr dálkur í fjárhagsskýrslum

Ný dálkagerð (gildi “Dagbækur”) er nú aðgengileg í fjárhagsskýrslum þar sem að skoða má óbókaðar dagbækur í sérstökum dálki í stað þess að þær birtist með bókuðum stöðum.

Afrita færslu

Í tækjaslá er nú hægt að afrita færslu í töfluvalmynd. Þegar farið í er í “Bæta við” hnappinn birtist nú fellivalmynd með þessum möguleika. Flýtihnappurinn fyrir þessa aðgerð er Shift+F2.

Flytja gögn inn og út

Við gagnaútflutning í Verkfæravalmynd getur notendur nú valið að flytja aðeins út reiti sem hægt er að lesa aftur inn. T.d. er ekki hægt að lesa reiti eins og fjárhagstöðu inn þar sem að á bak við þann reit eru færslur. Með þessu er hægt að flytja eingöngu út gögn sem hægt er að lesa inn aftur.

Uppskriftarskýrslur

Notendur geta nú opnað uppskrift og skoðað allt innihaldið.

Kostnaðarverð lotu- og raðnúmera

Við bókun reiknings með lotu-/raðnúmeri tengir Uniconta nú sölufærslu við innkaupafærslu sem tryggir að kostnaðarverð bókast rétt.

Víddir á birgðafærslum

Í fyrri útgáfum birtust víddir á birgðafærslum aðeins ef þær voru færðar inn á pantanalínur. Uniconta færir nú víddar á allar birgðafærslur ef tengd fjárhagsfærsla inniheldur vídd. Birgðafærslan sækir nú vídd úr pantanahaus og vöru.

Lotu-/raðnúmer – upphafsmagn

Í uppsetningu á lotu og raðnúmer hefur verið hægt að færa inn magn. Nýr reitur “Upphafsmagn” er nú aðgengilegur. “Upphafsmagn” er fjöldi lotu- og raðnúmera án birgðafærslu.

Óinnleystur VSK

Ef bókhald er færst á greiðslugrunni skal ekki telja fram VSK fyrr en greiðsla hefur borist. Notendur getur nú sett upp lykil fyrir óinnleystan VSK í stillingum á virkni undir Fyrirtækisvalmynd. Þegar Óinnleystur VSK er vikrur birstir reitur á VSK spjaldi þar sem velja þarf lykil. Þegar greiðsla hefur borist færir Uniconta VSK af óinnleystum VSK yfir á venjulegan VSK reikning.

Mínar stillingar

Notendur geta nú valið sjálfgefinn prentara og slóð í drif í mínum stillingum.

Ný útgáfa af Devexpress

Devexpress biðlari hefur nú verið uppfærður í útgáfu 18.1.5.

Aðrar nýjungar

  • Ný flýtileið “Vista og fara í línur” með F9
  • Hægt að velja gjalddagi á pöntun
  • Fjöldi lína í dagbók birtist nú í yfirlitsmynd
  • Hægt að nota víddir í Stafrænum fylgiskjölum (innhólf) og verkfærslum
  • Vöruheiti geta nú verið allt að 150 stafir
  • Notendur geta eytt fjárhagsárum óháð 7 ára reglunni í allt 15 dögum eftir að gögn hafa verið lesin inn í Uniconta.
  • Uniconta getur nú lesið inn öll gögn frá Axapta 3.0