Útgáfudagur: 11. nóvember, 2018

Stofna pöntun úr verki

Notendur geta nú stofnað sölupantanir beint úr verkbókhaldi án þess að „safna upp“. Hægt er að stilla „verktegund“ þannig að verklínur safnist sjálfkrafa upp þegar þær eru færðar í pöntun. Þegar pantanir eru stofnaður frá verkfærslum birtist pöntunarnúmerið á verkfærslunni.

Ef önnur pöntun er stofnuð úr sama verki yfirskrifast það pöntunarnúmer sem skráð er á verkið. Ef pöntun er eytt fjarlægir Uniconta pöntunarnúmerið og hægt er að stofna nýja pöntun.

Einnig má velja verkflokk á pöntunarspjaldi við stofnun pöntunar úr verki. Verkflokkurinn sýnir kostnaðar- og söluverð verksins. Ef notandinn breytir söluverði í pantanalínum, eyðir eða bætir við línum færist mismunurinn á milli samtölu verks og reiknings aftur á verkið.

Í pöntun má nú „aðlaga“ verk, t.d. setja inn færslur sem eru bókast á verkið við reikningsfærslu. Þessar færslur jafnast á móti mismuni á samtölu verks og reikningsfærðrar upphæðar.

Fjöldauppfærsla í verkbókhaldi

Fjöldauppfærsluaðgerð hefur nú verið bætt við verkbókhaldskerfið og virkar á svipaðan hátt og í pöntunum. Notandinn velur þau verk sem á að uppfæra og reikningsfærir eða stofnar pantanir. Tvær aðgerðir eru í boði í fjöldauppfærslu: stofna reikning eða stofna sölupöntun.

Staða verks/tegund

Notendur geta nú raðað eftir „öllum færslum“, „reikningsfært“ og „reikningshæft“. Þannig má t.d. skoða verðmæti og framlegð verks áður en reikningsfært er eða skoða framlegð verks sem hefur verið reikningsfært.

Verktegund: sjálfvirk uppsöfnun

Notendur geta nú stillt hvort safna eigi upp verklínum af ákveðinni tegund með sjálfvirkum hætti. Ef valið er að safna upp má tilgreina þá reiti sem safna skal upp.

Aðlögun – ný aðgerð í verkbókhaldi

Aðlögun er ný aðgerð í „verktegund“ sem nota má við reikningsfærslu, t.d. ef pöntun er leiðrétt eftir að hafa verið stofnuð úr verki. Nauðsynlegt er að setja upp þessa verktegund og merkja sem „sjálfgefna“.

Vöruafbrigði 1 og 2

Fyrir útgáfu 77 gátu notendur fært inn afbrigði 1 og 2 í sölu- og innkaupapantanir. Þessi möguleiki er komin aftur þannig að hægt er að skrá afbrigði 1 og 2 í aðskildum dálkum í pantanalínum. Ef fleiri afbrigði eru notuð þarf að nota nýju aðferðina sem kom í útgáfu 77. Aðgerðin er „backwards compatible“.

Flutningur á víddir í birgðabók

Í birgðabók má færa vörur á milli vöruhúsa og staðsetninga með því að nota reitina „til vöruhúss“ og „til staðsetningar“. Nú má færa birgðir á milli vídda með því að nota reitinn „til víddar“. Ef birgðir eru færðar á milli vídda stofnast færslur í fjárhag.

Talningarlisti með lotu-/raðnúmerum

Við höfum nú bætt lotu- og raðnúmerum á talningarlista. Hér birtast opin lotu- og raðnúmer fyrir viðeigandi vörur ásamt tiltæku magni.

Verð 1, 2 og 3 tóm

Ef þú notar t.d. verð 3 í birgðum og merkir verð 1 eða 2 á viðskiptavin og það verð er tómt (núll) tekur kerfið sjálfkrafa verð 3.

Uppskriftir og afsláttarhlutfall línu

Ef þú notar uppskriftir og verð er sprengt upp á reikningslínum færist afsláttarhlutfall uppskriftarinnar á undirlínur hennar.

Innlestur hreyfingayfirlits banka með dagsetningabili

Þegar bankayfirlit er flutt inn má velja dagsetningaafmörkun á færslur til innflutnings. Ef ekkert dagsetningabil eru valið flytjast allar færslur inn. Þessi aðgerð er þeim sem lesa hreyfingayfirlit inn í dagbók. Bankaafstemming tryggir hins vegar að ekki sé hægt að lesa sömu færslulínu inn oftar en einu sinni.

Vistun einkaskjala með reikningi

Hingað til hefur Uniconta aðeins vistað þau viðhengi sem eru send með reikningum. Nú má einnig vista skjöl sem ekki eru send út með reikningum t.d. innri minnisblöð.

Saldóstöður

Nú má sækja saldóstöður annars fyrirtækis. Hægt er að fela dálk við útskrift á saldóstöðum.

Bæta við reitum með tilvísun

Ef reitur með tilvísun er valin og listi opnaður má nú hægrismelli og velja „aðrir reitir“. Þá opnast skjámynd þar sem setja má upp aðra reiti fyrir listann. Hér má bæta við reitum eftir þurfum. Þessi aðgerð virkar ekki í dagbókum.

Tölvupóstsþjónusta

Við notum tvo þjónustuaðila til að senda tölvupóst frá Uniconta: Microsoft og emailManager.com. Microsoft er fyrsta val en í þeim tilfellum sem þjónustan virkar ekki notum við emailManager.com.

Notendur sem nota ekki eigin SMTP-þjón geta nú valið hvora þjónustuna þeir nota. Kosturinn við að nota emailManager.com er að það birtir ,,sendanda” en Microsoft gerir það ekki lengur.

Mörg opin fyrirtæki

Notendur geta nú haft mörg  fyrirtæki opin á sama tíma í aðskildum gluggum og óþarfi er að skrá inn og út úr kerfinu. Þegar skipt er á milli fyrirtækja opnast þau í nýjum Uniconta biðlara og það fyrirtæki sem er skipt úr er áfram opið.

  • Hægri smella á aðalvalmynd
  • Hnappur efst við hliðina á +
  • Opna Fyrirtæki “opna annan biðlara”
  • Admin/Öll Fyrirtæki “opnan annan biðlara”
  • Verkfæri Aðalvalmynd/Tækjaslá. Haka við “opna nýjan biðlara”

Arabíska

Arabíska er kominn inn sem nýtt  tungumál í Uniconta.

Nota C# í gagnastjórnun

Notendur geta skrifað kóða í Uniconta Script á þremur stöðum í kerfinu. Í Gagnastjórnun, Innflutningi ganga og Reiknuðum reitum. Uniconta Script er okkar eigið forritunarmál þar hægt er að forma og skrifa einfaldan kóða.

Notendur geta nú notað C# í staðinn. Ef C# er valið er kóðinn þýddur með innbyggðum C# þýðanda og .net kóði keyrður. Þannig fá notendur aðgang að öllum aðgerðum, geta hagrætt gögnum og birt reiknuð svæði.

Notendur þurfa nú að rita „rec.MyField“ í stað „this.MyField“.