Útgáfudagur 13. janúar 2019
Verk í vinnslu
Þegar verk er bókað í verkdagbók færir Uniconta nú verk í vinnslu(væntar tekjur) á Tíma, Efni og Útlagt. Lyklar og mótlyklar eru settir upp í Verkflokkum. Ef lyklar eru ekki skilgreindir færir Uniconta verk í vinnslu ekki inn í fjárhag heldur eingöngu í verkbókhaldskerfinu..
Ef að verk í vinnslu er bókað í fjárhag kemur hak í reitinn „verk í vinnslu“ í verkfærslum. Þegar verk í vinnslu er reikningsfært jafnast þessar færslur út og aðeins rauntekjur verks standa eftir í fjárhag og verkbókhaldi.
Tímaskráning í verkbókhaldi
Uniconta tímaskráning er ný eining í Verkbókhaldi þar sem haldið er utan um tímaskráningu starfsmanna, verk í vinnslu og reikningsfærslu.
Áherslan er á tími starfsmanna er takmarkaðan forða og sett er upp vinnudagatal og taxti fyrir hvern og einn starfsmann. Dagatalið og taxtarnir eru svo nýttir í tímaskráningunni en einnig má skrá tíma í gegnum starfsmannatöfluna.
Starfsmaður getur sjálfur lokað skráningartímabilinu allir tímar hafa verið skráðir og yfirmaður fer næst yfir tímaskráninguna og samþykkir. Þegar skráningin er samþykkt bókast hún í gegnum verkdagbók. Starfsmaður getur enduropnað tímabil sem ekki hafa verið samþykkt og breytt skráningum.
Virkja má Uniconta tímaskráningu undir Fyrirtæki/Viðhald/Val kerfiseininga.
Kröfukerfi
Með kröfukerfinu má stofna kröfur og færa innborganir á kröfum frá viðskiptavinum. Til að virkja þessa aðgerð þarftu að gera samning um innheimtuþjónustu við þinn viðskiptabanka og að virkja kerfiseininguna kröfukerfi undir Fyrirtæki/Viðhald/Kröfukerfi.
Setja þarf upp skráarsnið til að eiga samskipti við bankann með eindagareglum o.fl. Því næst er farið í Viðskiptavinir/Skýrslur/Greiðslukerfi og valið hvaða reikninga á að stofna kröfur fyrir og hvort sameina eigi reikninga hvers viðskiptavinar í eina kröfu. Kerfið útbýr þá skrá sem hlaðið er inn í netbanka.
Flýtihnappar í tækjaslá
Nota má flýtihnappa til að keyra aðgerðir í tækjaslá og mun flýtihnöppum fjölga á næstunni.
Stafræn fylgiskjöl – nýjungar!
Í stafrænum fylgiskjölum er nú mögulegt „sameina pdf skjöl“ í stað þess að nota möppur eins og áður. Í sniði er svo hægt að stilla röðun reita til að auka skilvirkni í innsláttarvinnu.
Einnig er nú hægt að skipta út fylgiskjali án þess að þurfa að færa innslegnar upplýsingar aftur t.d. ef röngu skjali hefur verið hlaðið inn í upphafi.
Í þriðja lagi má flytja og afrita skjöl t.d. til að gera þau að viðhengi við innkaupa- og sölupantanir.
Síðast en ekki síst er nú hægt að senda reikninga til rafræns aflestrar (OCR). Gjald er tekið fyrir þá þjónustu skv. verðskrá.
Tolla- og vörugjaldakerfi í birgðum
Undir Fyrirtæki/Viðhald/Val kerfiseininga má nú virkja tolla- og vörugjaldakerfi. Uppsetning gjalda er gerð í Birgðir/Viðhald/Tolla-/gjaldaflokkar. Þegar búið er að stofna flokka og línur má tengja tollflokkana inn á vörur.
Tolla og gjöld má reikna sem Upphæð á einingu, Fasta upphæð, Hlutfall af nettóupphæð eða Hlutfall af kostnaðarverði. Næst er settur inn Stuðull sem er þá annað hvort prósentuhlutfall eða upphæð.
Í reitunum Birta á reikningi má ákveða hvort tollurinn eða gjaldið birtist á reikningi:
- Pantanalína þýðir að ný lína með gjaldinu stofnast inn í pöntun. Ef reiturinn Vara er notaður birtist viðkomandi vörunúmer í pantanalínu líkt og það hefði verið slegið inn handvirkt.
- Innifalið í einingarverði hækkar verðið um viðeigandi stuðul en tekjufærir ekki gjaldið heldur fer bókun þess eftir tilgreindum lykli og mótlykli. Ef vörunúmer er sett upp fyrir gjaldið stýrist bókun eftir vörunúmerinu.
- Fela þýðir að gjaldið færist í fjárhag en hefur engin áhrif á reikninginn til hækkunar.
Að lokum má stilla hvort að tollur eða gjald færist við sölu, innkaup eða hvorttveggja.
Reikningshæft í verkbókhaldi
Í verkbókhaldi er reiturinn „reikningshæft“ sem hægt hefur verið að breyta handvirkt. Nú er má einnig stilla staðalgildi fyrir þennan reit í Verkdagbókum, Verktegundum og Launaflokkum. Staðalgildið erfist við bókanir á verk í gegnum dagbækur og innkaup.
Tengsl pantanalínu og framleiðslu
Þegar framleiðsla er stofnuð út frá pantanalínu myndast vensl þar á milli og auðvelt er að hoppa á milli.
Ný skýrsla í framleiðslukerfi
Þegar framleiðsla er bókuð tilbúin stofnast vörulínur í birgðakerfi sem innihalda ekki sérhannaða reiti. Í framleiðslukerfinu er nú hægt að keyra skýrslu sem inniheldur aðeins birgðafærslur framleiðslukerfis og birtir reiti notanda. Þetta er sambærilegt við sölu og innkaup þar sem hægt er að setja upp sérskýrslur til að sýna sérhannað reiti.
Staðalafbrigði – velja allar samsetningar
Í afbrigðum má nú virkja allar mögulegar samsetningar afbrigða í stað þess að skilgreina þær samsetningar eru leyfðar.
Aðrar nýjungar:
- Verðlistar bjóða nú upp á fleiri en tvo aukastafi eins birgðakerfi
- Vörulýsing getur nú verið margar línur
- Hægt að nota afbrigði í framleiðslu
- Veltitafla í verkbókhaldi inniheldur nú tegundir og launaflokka sem víddir.
- Hægt að opna „til ráðstöfunar“ í verkbókhaldi og skoða birgðastöðu
- Við innlestur í bankaafstemmingu má nú setja línur á bið
- Innkaupagjöld má nú setja upp þannig að þau bókist á lánardrottinn
- Hægt að stofna öll skjöl með fjöldauppfærslu í innkaupum
- Hægt að prenta og flytja út gögn úr veltitöflum
- Kerfið hefur verið uppfært í Devexpress útgáfu 18.1.7