Hlekkur á hjálparhandbókina Unipedia í tækjaslánni
Með því að smella á „?“ í tækjaslánni getur þú nú með skjótum hætti opnað hjálparhandbókina Unipedia sem inniheldur upplýsingar og leiðbeiningar um notkun kerfisins.
Færa flutningskostnað sem hluta af kostnaðarverði vöru
Í innkaupum er nú hægt að færa flutnings- og innkaupakostnað inn í kostnaðarverð vöru. Þegar innkaupareikningur er bókaður deilist kostnaðurinn hlutfallslega niður á línurnar í innkaupapöntuninni og færist þannig sem hluta af kostnaðarverði. Mótlyklar eru settir upp í Lánardrottinn/Viðhald. Hægt er að setja upp lykla fyrir fleiri tegundir flutnings- og innkaupskostnaðar.
Hægt er að færa reikninga inn á kostnaðarverð eftir að innkaup hafa verið bókuð í gegnum Lánardrottinn/Skýrslur/Reikningar.
Greiðsluskilmálinn Staðgreitt
Ef greiðsluskilmálinn staðgreitt er valin verður ekki til færsla á viðskiptavin eða lánardrottinn þar sem engin skuldfærsla verður til. Nú má hins vegar virkja bókun á viðskiptavin eða lánardrottinn með greiðsluskilmálanum staðgreitt. Þá stofnast tvær færslur á sama fylgiskjali, skuldfærsla og greiðsla.
Snið og samsettir reitir
Í sniðvalmyndinni er nú hægt að sækja samsetta reiti, þ.e. reiti úr öðrum töflum. Það eru reiti sem eru ekki vistaðir í töflunni en eru sóttir úr öðrum töflum með tilvísunum. Þetta nýtist t.d. í færslum viðskiptavina þar sem hægt er að sækja alla reiti úr spjaldi viðskiptavinar og birta samhliða færslunum.
Reikningsyfirlit viðskiptavina
Nú er hægt að keyra reikningsyfirlit fyrir flokk viðskiptavina. Mikilvægt er að velja viðtakanda yfirlitsins áður en smellt er á „Senda með tölvupósti“
Reikningslyklar í sölu og innkaupum
Reikningslykill hefur verið valkostur á spjöldum lánardrottna og viðskiptavina til að stýra skuldfærslu inn á annan aðila en tilgreindur er í pöntun. Þessi reitur er nú aðgengilegur í innkaupa- og sölupöntunum. Ef reiturinn er skilinn eftir tómur stýrist bókun á þann lánardrottinn eða viðskiptavin sem er tilgreindur í pöntun.
Verðlistar í sölu- og innkaupapöntunum
Hægt er að setja upp verðlista í lánardrottnum og viðskiptavinum sem stýra verðum tiltekinna aðila. Nú má velja verðlista í sölu- og innkaupapöntunum og gildir þá valinn verðlisti fyrir þá pöntun sem unnið er með.
Verð með fleiri aukastöfum
Hægt að skrá verð með allt að fimm aukastöfum í birgðaspjaldi, birgðabók, birgðafærslum og í sölu- og innkaupapöntunum.
Aðrar nýjungar
- Ný skjámynd í vöruspjaldi sýnir hvaða uppskriftum varan tilheyrir
- Hægt að prenta afhendingarseðla og pantanastaðfestingar úr fjöldauppfærslu/áskriftum
- Hægt að sameina innkaupapantanir á sama hátt og sölupantanir
Ef þú hefur einhverjar spurning eða ábendingar, sendu okkur línu á [email protected] Með þinni hjálp gerum við Uniconta að besta bókhaldskerfi sem völ er á.