Útgáfa-90 Hægt er að breyta kostnaðarverði á kreditnótum og innkaupapöntunum. Þannig getur kostnaðarverð á birgðafærslum verið rétt. Komi til breytinga er leiðréttingarliður í fjárhag bókaður á sama tíma fyrir mismuninn.
Breyting á kostnaðarverði kreditnótu
Hér er sýnt hvað gerist þegar kostnaðarverði kreditnótu er breytt.
Fara í Viðskiptavinur/Skýrslur/Reikningar og í Reikningslínur í tækjaslá.
Hér eru Reikningslínur fyrir breytingu
Þá er kostnaðarverð hækkað um 50 ISK með því að smella á „Breyting á kostnaðarverði“
Rétt kostnaðarverð er fært inn.
Nú gerist eftirfarandi í fjárhagnum.
Nú hefur færslunum verið bætt við og kreditreikningurinn leiðréttur
Breyting á kostnaðarverði vegna innkaupa
Hér er sýnt hvað gerist þegar kostnaðarverði innkaupapöntunar er breytt.
Fara í Lánardrottinn/Skýrslur/Reikningar og í Reikningslínur í tækjaslá eða fara í birgðafærslur.
Hér eru Reikningslínur fyrir breytingu
Síðan er kostnaðarverðið hækkað um 100 ISK með því að smella á hnappinn „Breyting á kostnaðarverði“
Rétt kostnaðarverð er fært inn.
Nú gerist eftirfarandi í fjárhagnum.
Athugun í gegnum birgðaafstemmingu má sjá að breytingin er rétt.
Hvaða hreyfingartegundum er hægt að stjórna
Hægt er að breyta kostnaðarverði á lagerkvittunum. Þ.e. Innkaupum og kreditnótum. Auk þess er hægt að leiðrétta kostnaðarverð vegna flutninga. Allar leiðréttingar þ.m.t. ofangreint er hægt að gera undir Birgðir/Færslur.