Í Uniconta er hægt að nota eigin SMTP uppsetningu og nota þar með sinn eigin tölvupóstþjón til að senda tölvupóst frá Uniconta.
Mælt er með því við alla viðskiptavini að þeir setji upp sitt eigið SMTP gildi.
Hægt er að setja upp SMTP á tveimur stöðum í Uniconta.
- Viðskiptavinur/Viðhald/Tölvupóststillingar
- Fyrirtæki/Viðhald/Tölvupóststillingar
Við mælum með því að nota Fyrirtæki/Viðhald/Tölvupóststillingar, þar sem þú þarft aðeins að stofna SMTP hérna einu sinni og það gerir það auðveldara að viðhalda SMTP upplýsingum, t.d. þegar þú skiptir um lykilorð eða álíka.
Við uppsetningu undir Fyrirtæki/Viðhald/Tölvupóststillingar þarf að velja þessa SMTP uppsetningu undir Viðskiptavinur/Viðhald/Tölvupóststillingar í reitnum Tölvupóststillingar. Innihald tölvupóstsins verður að vera sett upp undir Viðskiptavinur/Viðhald/ Tölvupóststillingar – uppsetning þar sem þú getur skilgreint hver á að vera sendandi, cc, bcc. Efni og innihald tölvupósts þegar hann er sendur.
Mikilvægt varðandi uppsetningu tölvupósts
Athugið! Við mælum með að allir notendur sendi reikninga í gegnum eigin póstþjón. Ef þú fyllir ekki inn upplýsingar um þinn eigin SMTP netþjón þá eru tölvupóstar sendur í gegnum ‘mailmailmail.net’ með sendanda-netfanginu mail@unicontamail.com sem getur leitt til þess að þessir tölvupóstar lendi í ruslpóstsíu viðtakanda .
Athugið! Ef uppsetning tölvupósts er ekki sett upp fær tölvupóstur sendanda (þ.e. tölvupóstur notanda) afrit af öllum tölvupóstum sem sendir eru frá fyrirtækinu.
Athugið! Ef uppsetning tölvupósts með SMTP er ekki sett upp þá er hámarksfjöldi tölvupósta sem hægt er að senda t.d. í tengslum við fjöldauppfærslu 50 stk.
Athugið! Stofna þarf til tölvupóstuppsetningu í fyrirtækjaeiningunni ef senda á samþykktar-tölvupóst í tengslum við samþykki stafrænna fylgiskjala.
Athugið! Ef notað er CRM (Viðskiptatengsl) verður sendandi tölvupósts að vera settur upp undir Fyrirtæki/Viðhald/Tölvupóststillingar. Lesa meira um CRM hér…
DNS skrá og IP tala
Oft þarf líka að gera einhverjar lagfæringar á eigin póstþjóni þannig að heimilt sé að senda póst fyrir þína hönd frá Uniconta.
Ef þú þarft að vita DNS skrá okkar og IP tölu í tengslum við þetta geturðu séð þær hér
SMTP uppsetning
- Fara í Fyrirtæki/Viðhald/Tölvupóstsstillingar
- Smella á „Bæta við“ eða „Breyta“ í tækjaslánni.
- Hægt er svo að nota „Wizard“ hnappinn í tækjaslánni til aðstoðar. Wizardinn býður upp á að fylla út SMTP-þjón og SMTP port number , þar sem þú velur einfaldlega hvort þú notar Office 365, Gmail eða Yousee.
- Ef ekki er haft einhvern af ofangreindum þjónustum ert hægt að fylla út SMTP upplýsingar sjálfur. Fylla skal út eftirfarandi reiti:
- Slá inn SMTP-þjón (hægt að fá þær upplýsingar frá söluaðila netþjónustunnar)
- Slá inn SMTP port number (hægt að fá þær upplýsingar frá söluaðila netþjónustunnar)
- Slá inn SMTP notandann, venjulega netfangið sem á að senda frá.
- Slá inn SMTP lykilorð, lykilorð sem stemmir við notandann / netfangið.
- Mælt er með því að haka í reitinn Nota SSL
. Ef TLS er notað, sem er á protocol leveli, þá verður SMTP netfangið að byrja á tls:// og SMTP portnúmerið verður að vera stillt á 587.
Dæmi um SMTP-þjóns-póstfang: tls://smtp.minmailserver.dk - Ef hakað er í Leyfa annan sendanda er hægt að láta tölvupóst sendast úr öðru póstfangi.
‘Leyfa annan sendanda’ er stilling í Office 365 og öðrum kerfum sem almennt leyfir ekki tölvupóstreikningi að senda tölvupóst í nafni einhvers annars. Með því að krossa við Leyfa annan sendanda hefur það verið tryggt. - Smella á Sannreyna uppsetningu / Tölvupóstur, og sláðu inn t.d. þitt eigið netfang eða, jafnvel betra, netfang á öðru léni, t.d. einkanetfangið þitt eða álíka og smella á Í lagi.
Ef SMTP hlutinn er rétt uppsettur sérðu skilaboðin „Tölvupóstur sent villulaust“ og þér hefur verið sendur prufupóstur á netfangið sem þú gafst upp. - Smelltu á Vista í tækjaslánni
Lýsing á reitum
Í hlutanum ‘SMTP uppsetning’ í þessari grein geturðu séð lýsingu á reitunum undir fyrirsögninni ‘SMTP – Host’.
Reitunum undir fyrirsögninni ‘Tölvupóstuppsetning’ er lýst í þessari grein.
Dæmi: SMTP Uppsetning Office 365
Útmiðlari
SMTP-þjónn: smtp.office365.com
SMTP port number: 587
SMTP Notandi: tölvupóstfangið þitt
SMTP-aðgangsorð: aðgangsorðið að Office 365.
Nota SSL: Já (haka við)
Dæmi – SMTP Uppsetning One.com
SMTP notandi verður að vera netfangið þitt skráð í One.com
SMTP lykilorð er lykilorðið sem tilheyrir tölvupóstinum þínum sem þú notar í SMTP notandareitnum.
SMTP-þjónn: send.one.com
SMTP-portnummer: 587
SMTP-notandi: tölvupóstfangið þitt
SMTP-aðgangsorð: aðgangsorðið
Dæmi – SMTP Uppsetning Simply.com/UnoEuro.com
SMTP notandi verður að vera netfangið sitt skráð hjá Simply.com, áður UnoEuro.com
SMTP lykilorð er lykilorðið sem tilheyrir tölvupóstinum þínum sem þú notar í SMTP notandareitnum.
SMTP-þjónn: smtp.simply.com
SMTP-portnummer: 587
SMTP-notandi: tölvupóstfangið þitt
SMTP-aðgangsorð: aðgangsorðið
Gmail
Ef um villur er að ræða í sambandi við að senda tölvupóst
Ef þú færð villur í tengslum við sendingu tölvupósts geturðu lesið meira hér.