Hægt er að stofna margar dagbækur með mismunandi nöfnum og tilgangi (daglegar færslur, greiðslur, mánaðarlegar færslur, banki, gjaldmiðlar o.s.frv.) Hverja dagbók er hægt að sérsniða m.t.t. meðhöndlunar gagna og innsláttar. Hér förum við yfir uppsetningu dagbóka en ekki eiginleika þeirra en þeim er lýst í öðrum greinum. Uppsetning dagbóka gildir fyrir alla notendur óháð einstaklingsbundinni uppsetningu.
Valmynd dagbóka | |
Bókaðar dagbækur | Hér eru sýndar allar bókaðar dagbækur.
Hér er hægt að sjá allar bókaðar dagbækur í Uniconta og hugsanlega eyða þeim. Einnig er hægt að sjá fjárhagsfærslur og verkefnafærslur. |
Flytja inn skrá | Hér er hægt að flytja skrá inn í dagbókina. |
Eyða dagbókarfærslum | Hér er hægt að eyða öllum færslum í óbókaðri dagbók. |
Lýsing á reitum í uppsetningu birgðabókar: | |
Dagbók | Heiti. Hægt að skrá og breyta handvirkt. Allar bókaðar dagbækur og færslur þeirra breytast í samræmi við það. Ef nafni dagbókar er breytt eftir að það er búið að bóka færslur þá mun nafnið breytast allstaðar í kerfinu. Eða með öðrum orðum – breytingar á nafni dagbókar mun ekki valda vandræðum í kerfinu. |
Starfsmaður | Hægt er að skrá starfsmann fyrir dagbók. Sú tegund dagbókar getur því eingöngu verið bókuð af viðkomandi starfsmanni. |
Fastur texti | Dagbókarnafn sem gefur til kynna tilgang dagbókar. |
Númeraröð | Númeraröð til útdeilingar fylgiskjalsnúmera í dagbók. Nauðsynlegt er að velja númeraröð en þær finnur þú undir Fjárhagur/Viðhald/Númeraraðir. Mörg færslubókarheiti geta deilt sömu númeraröð. Ábending: Ef margar færslubækur nota sömu númeraröð og færslubók er ekki bókuð strax og önnur færslubók er fyllt út munu færslurnar nota sömu númer. Til dæmis, ef skipt er upp bókun á fjárhagsskjölum í margar dagbækur eftir tegund eða notenda, geta þau auðveldlega deilt sömu númeraröð. Ekki nota númeraðar kaup- og sölupantanir í dagbókum og ekki breyta númeraröð eftir að byrjað er að nota dagbók. |
Úthlutun fylgiskjalsnúmers í dagbókum við bókun | Fylgiskjalsnúmerum er úthlutað sjálfkrafa við bókun eftir “næsta númer” í valdri númeraröð. Þegar dagbókin er bókuð fær hvert fylgiskjal sitt númer sjálfkrafa. Ef þetta „hak“ er stillt og ekki „bóka allar færslur í fjárhag undir sama fylgiskjalsnúmer“ þá verða engin fylgiskjalsnúmer fyrir verkfærslurnar sem mynda ekki færslu. Aðferðin tryggir að engar eyður eru í fylgiskjalaröðinni í fjárhagnum. |
Bóka allar færslur fjárhags með sama fylgiskjalsnúmeri | Eins og ofangreind Úthlutun fylgiskjalsnúmers í dagbókum við bókun fá öll fylgiskjöl sama númer. |
Lokað | Dagbókin er lokuð fyrir færslur. Notið ef ekki á að nota dagbókina oftar. Það er ekki hægt að eyða dagbók sem hefur verið notuð til bókunar en hægt að loka henni í staðinn. |
Sjálfvirk vistun | Ef hakað er í sjálfvirk vistun mun dagbókin vera stöðugt vistuð sjálfkrafa. |
Eyða línum eftir bókun | Allar línur eyðast úr dagbók við bókun. Ef ekki er hakað í reitinn eru línurnar áfram til staðar í dagbókinni og hún verður “standandi dagbók” þar sem hægt er að bóka sömu færslur ítrekað með nýrri dagssetningu og fylgiskjalsnúmerum. Þetta hentar vel fyrir fasta liði eins og laun og húsaleigu. |
Dagbókarlína þarf samþykkt | Haka skal við þennan valkost ef samþykkja þarf dagbókarlínur. Allar dagbókarlínur munu þá vera með samþykktar dálki. Línan getur aðeins verið bókuð eftir samþykkt. |
Víddir | Hér er hægt að stilla sjálfgefnar víddir fyrir færslubókarfærslur. NB! Þessir reitir eru ekki notaðir. |