Innlestur bankahreyfinga með bankatengingu

.

Í gegnum Afstemmingu banka er hægt að setja upp beintengingu við banka. Með því er hægt að lesa bankahreyfingar beint úr fyrirtækjabanka og í dagbók. Bankareikning er bætt við í afstemmingu banka
Farið er í Fjárhagur/Afstemming banka

Smellt er á “Bæta við bankareikningur” í tækjslánni

Valið er Fjárhagslykil banka, en til að geta valið þann lykil þarf hann að vera stilltur með kerfislyklinum “Banki”.

Til að stilla fjárhagslykil með kerfislykilinn “Banki”, er farið í Fjárhagur/Bókhaldslykill og fundin sá lykilinn sem á að vera bankalykill og smellt á “Breyta” og fyllt út undir “Kerfislykill”. Lesa meira um kerfislykil hér.

Næst er bankareikningsnúmer skráð í reitinn “Bankareikningur”. 12 stafir og má vera með eða án bandstriks.

Smella svo á “Vista”.

C: \\ Notendur \\ Skjöl> \\< Custom Office sniðmát

Því næst er smell á “Sækja gögn” í tækjaslánni.

Smellt er á “Bæta við skrársnið banka” til að setja upp skrársnið fyrir viðkomandi banka. Eitt skrársnið er stofnað fyrir hvern banka. Smella svo á “Vista”. [OK]

Skjámyndinni er svo lokað, og valin bankareikningur og “Sækja gögn” í tækjaslá. Þá birtist valmöguleiki til að setja inn “Notandanafn” og “Lykilorð” bankareiknings. Einnig þarf að setja inn tímabil bankahreyfinga sem verið er að sækja.

Hjá Arion og ISB kemur „Undantekning“ – þetta er 1000-villa og þarf að biðja banka um að virkja notandann á skilríkið

.

. [Send]

.

.